Fara í efni

Kveðja til fráfarandi bæjarstjóra

Kveðja til fráfarandi bæjarstjóra

Í vikunni lauk Magnús Stefánsson starfstíma sínum sem bæjarstjóri Suðurnesjabæjar. Hann hóf störf sem bæjarstjóri Sveitarfélagsins Garðs í júlí 2012 og var síðan ráðinn bæjarstjóri Suðurnesjabæjar árið 2018, eftir sameiningu sveitarfélaganna Sandgerðisbæjar og Garðs. Hann hefur því gegnt starfi bæjarstjóra í nær 14 ár.

Á starfstíma Magnúsar hefur verið mikil uppbygging innviða og þjónustu í sveitarfélaginu. Íbúum hefur fjölgað mjög á undanförnum árum, grunnur hefur verið lagður að enn frekari uppbyggingu og íbúafjölgun í nánustu framtíð. Miklar breytingar og þróun hafa orðið á samfélaginu á þeim árum sem hann hefur starfað sem bæjarstjóri sveitarfélagsins.

Á sínum fyrsta fundi 3.júní sl. bókaði nýkjörin bæjarstjórn Suðurnesjabæjar eftirfarandi kveðju:

„Að lokum vill nýkjörin bæjarstjórn þakkar fráfarandi bæjarstjóra, Magnúsi Stefánssyni, fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins og óskar honum velfarnaðar í komandi verkefnum.“

Suðurnesjabær óskar Magnúsi, Drífu konu hans og þeirra fjölskyldu farsældar í framtíðinni.